Sótthreinsun framleidd á staðnum
EH13 býður upp á ECA-rafala sem framleiða sótthreinsandi efnið Anolyte á þínum vinnustað úr engu öðru en vatni, salti og rafmagni. Búnaðurinn einfaldar þrif og sótthreinsun, eykur öryggi starfsfólks og dregur úr umhverfisspori fyrirtækisins. Við aðstoðum fyrirtæki í matvælaframleiðslu, heilbrigðisgeiranum og iðnaði að tryggja hreinlæti án skaðlegra efna.
Allar helstu aðstæður!
Hvar hentar ECA?
Heilsugæslur
Nýtist við sótthreinsun þar sem eru viðkvæmir einstaklingar, á búnaði og starfsumhverfi.
Iðnaður
Tilvalið í hvers kyns iðnað þar sem halda þarf ýmsum búnað hreinum og/eða sótthreinsuðum.
Ríkisrekstur
Sama hvort sem um ræðir einka eða ríkisrekstur þá hentar ECA öllum þínum þörfum.
Notagildi ECA rafala
Góðum árangri hefur nást með notkun ECA rafala í fiskiðnaði, landbúnaði og í raun alls staðar þar sem þörf er á lífrænni sótthreinsun. Notagildi ECA rafala er undirstrikað vegna hve fjölþætt lausn þetta er, hvort sem nýta á hana til þrifa eða sem viðbót í drykkjarvatn dýra þá er ECA skilvirk og örugg lausn.
Umhverfi og öryggi
Anolyte er samþykkt efni af Evrópusambandinu sem óeitrað og niðurbrjótanlegt efni og því um umhverfisvæna og örygga lausn að ræða fyrir þitt fyrirtæki. Efnið er drykkjarhæft og óskaðlegt mönnum, dýrum og náttúrunni.